Auðlesinn texti

Á þjóðhátíðardaginn 17. júní verður fjölbreytt dagskrá. 

Skrúðganga verður frá Hallgrímskirkju. Tónleikar, götuleikhúsið, dansveisla, sirkus, hoppukastalar og leiktæki, matarvagnar og fornbílasýningar í Hljómskálagarðinum. 

Á tónleikunum koma fram;

  • Tónhylur
  • Amabadama
  • Páll Óskar
  • VÆB

Einnig mun Leikhópurinn Lotta og ýmsir danshópar koma fram.

Á Klambratúni verður plötusnúður, danshópar, Lúðrasveitin Svanur, Vinur minn Súpermann og matarvagnar.

Strætó bílastæði og aðgengi

Allar helstu leiðir Strætó ganga í miðborgina á 17. júní, en gera má ráð fyrir einhverjum breytingum á leiðakerfinu vegna götulokana.Upplýsingar um leiðakerfið er að finna á vef Strætó.

Hægt verður að leggja bílum við Tækniskólann. Aðgengi að bílastæðinu er um Bergþórugötu. 

Aðgengi er í öll bílastæðahús á 17. júní,

Bílastæði fyrir hreyfihamlaða í nálægð við Hljómskálagarð er á Bjarkargötu, Tjarnargötu og í bílakjallara Ráðhússins (aðgengi í lyftur ráðhússins loka kl. 18:00) .

Gott aðgengi er fyrir öll í Hljómskálagarð. 

Hjólastólapallur verður fyrir framan svið í Hljómskálagarði.

Allir viðburðir og þjónusta á vegum Reykjavíkurborgar skal mæta þörfum ólíkra hópa í samræmi við aðgengisstefnu Reykjavíkurborgar.