Korpuskóli - Endurgerð lóðar 2026
Verkið snýr að endurgerð/breytingum á lóð Korpuskóla að Bakkastöðum 2, 112 Reykjavík vegna breyttrar notkunnar á húsnæði. Horft verður til hluta skólalóðar þar sem aðalleiksvæði skólans er staðsett en það svæði er alls u.þ.b 6700 m² að stærð en heildarstærð lóðarinnar er um 22.000 m². Korpuskóli verður að sérkennsluskóla fyrir eldri börn á grunnskólaaldri. Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæði. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt. Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki. Bætt verður við snjóbrædd svæði á lóð. Öll aðstaða á skólalóðinni verði bætt og verði aðgengileg fyrir börn og fullorðna með mismunandi tegundir fötlunar, þar með talið hreyfihömlun, sjón- eða heyrnarskerðingu og þroskafrávik.
Maí - Ágúst 2026
Hvað verður gert?
Öll aðstaða á skólalóðinni verði bætt og verði aðgengileg fyrir
Ný leiktæki og ný yfirborðsefni með fallvörn þar sem það á við og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt.
Jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.
Bætt verður við snjóbrædd svæði á lóð.
Hvernig gengur?
Ágúst 2026
Lokaspretturinn í þessum mánuði. Leiktæki eru að fara niður, girðing og hlið fara upp ásamt því að klárað verður að leggja yfirborðsefni.
Hver koma að verkinu?
Verkefnastjóri
Andri Þór Andrésson
Deild gatna, lóða og opinna svæða
Reykjavíkurborg
Deild gatna, lóða og opinna svæða
Reykjavíkurborg
Síðast uppfært 06.08.2026