Leikskólinn Kvistaborg - framkvæmdir

Unnið er að endurbótum á leikskólanum Kvistaborg
2021 -

Myndir

Hvað verður gert?

Unnið er að undirbúningi að gagngerum endurbótum á leikskólanum Kvistaborg. Við hönnunarvinnu hefur verið lagt upp með að nýta burðarvirki húsanna að hluta til en við nánari skoðun teljast undirstöður hússins ekki nægjanlega burðarhæfar.

Verið er að meta forsendur verkefnisins upp á nýtt en starfsemi leikskólans fer fram í færanlegum kennslustofum á lóð leikskólans og við Fossvogsskóla.

Hvernig gengur?

Júní 2026

Gerð hefur verið ástands- og burðarþolsúttekt á undirstöðum hússins en hönnunarforsendur gera ráð fyrir að þeim sé haldið eftir ásamt hluta af steyptum veggjum og hluta af gólfplötum.

Niðurstöður úttektarinnar gefa skýrt til kynna að best fari á því að fjarlægja undirstöðurnar í heild sinni. 

Fjárhagslegar forsendur og tímalína verkefnisins hafa því breyst umtalsvert en meta þarf forsendur verkefnisins upp á nýtt til samræmis við fjárfestingaáætlun borgarinnar.

Maí 2025

Lagt fyrir og samþykkt í Borgarráði að hefja innkaupaferli á framkvæmdum við nýbyggingu á lóð skólans. 

Verkfræðistofan Efla mælir með að farið verði í gagngerar endurbætur á elsta hluta skólans sem byggður var 1972 og hentar illa starfi nútíma leikskóla. 

Endurbæturnar á húsnæði Kvistaborgar munu m.a. ganga út á að: 

  • Stækkun húsnæðis
  • Aukið við lofthæðina í húsunum
  • Þak verður endurnýjað 
  • Hljóðvist bætt með nýju loftaefni
  • Ljósvist verður bætt
  • Loftræsting verður sett í allt húsið
  • Gluggar endurnýjaðir
  • Hiti settur í gólf
  • Hús einangrað að utan
  • Ný gólfefni
  • Allt húsnæðið málað
  • Salerniskjarnar verða endurnýjaðir

Mars 2025

Ákveðið að Kvistaborg fái afnot af færanlegum einingahúsum við Fossvogsskóla (Eyland).

Hver koma að verkinu?

Skrifstofa framkvæmda og fasteignaþjónustu Reykjavíkurborgar

Verkkaupi

Nordic office of architecture

Arkitektar

Cowi Ísland ehf

Ráðgjöf
Síðast uppfært 11.06.2026