Menningarnótt - Forsíða
Menningarnótt laugardaginn 22. ágúst 2026
Menningarnótt, stærsta afmælis- og borgarhátíð Reykjavíkur verður haldin laugardaginn 22. ágúst 2026. Segja má að hátíðin sé hápunktur sumarsins og skemmtilegir viðburðir lita mannlífið í miðborginni frá morgni til kvölds. Hátíðin er fyrir alla borgarbúa og gesti sem vilja taka þátt og skemmta sér. Hefð er orðin hjá mörgum fjölskyldum og vinahópum að mæla sér mót á Menningarnótt og eiga skemmtilegan dag saman.
Verum klár, njótum samveru með fjölskyldu og vinum á Menningarnótt og verðum samferða heim að loknum hátíðarhöldum. Verum Klár
Viltu taka þátt í Menningarnótt?
Við tökum vel á móti þeim sem vilja taka þátt í hátíðinni í ár, sem haldin verður hátíðlega 22. ágúst 2026. Hátíðarsvæðið nær yfir miðborgina og að Lönguhlíð í Austurbænum, að Hagatorgi í Vesturbænum og teygir sig út á Granda.