Sundhöll Reykjavíkur
Mán.–fös. kl. 6:30–22:00
Lau.–sun. kl. 8:00-22:00
Barónsstígur 45a
101 Reykjavík
Sundhöll Reykjavíkur
Sundhöll Reykjavíkur við Barónsstíg er ein elsta sundlaug borgarinnar og eitt af þekktari mannvirkjum í miðborg Reykjavíkur. Hún sameinar sögulegt andrúmsloft og nútímalega aðstöðu eftir endurbætur síðustu ára. Þar eru innilaug, heitir pottar, kaldur pottur, sána og eimbað, einnig er gott útisvæði á þaksvölum með sólbekkjum. Sundhöllin er vinsæl meðal bæði íbúa og ferðamanna.
Aðstaða í og við Sundhöll Reykjavíkur
- 25 metra laug
- Aðgengi í laug fyrir fatlaða
- Barnalaug
- Eimbað
- Heitir pottar
- Innilaug
- Kaldur pottur
- Klór framleiddur úr salti
- Nuddpottur
- Sala á sundfatnaði
- Sána
- Sérklefi
- Stökkbretti
- Ungbarnaaðstaða
- Útiklefar
- Vaðlaug
- Veitingasala
Aðgengi og sérklefar
Við viljum að öllum líði vel í sundlaugum Reykjavíkur. Þess vegna er lögð áhersla á gott aðgengi, þægilega aðstöðu og fjölbreytta möguleika fyrir ólíkar þarfir. Hér er yfirlit um aðgengi og sérklefa í öllum sundlaugum Reykjavíkur.
Ítarlegar upplýsingar um Sundhöll Reykjavíkur
Sundhöllin var tekin í notkun árið 1937. Guðjón Samúelsson arkitekt teiknaði húsið. Sundhöllin er tæpir 2.700 fermetrar að stærð. Í henni er sundlaug, barnalaug, heitir pottar, eimbað og stökkbretti auk aðstöðu til líkamsræktar. Þann 3. desember 2017 var tekin í notkun ný viðbygging við Sundhöllina.
Aðrar upplýsingar
Stökkbretti í Sundhöllinni
Athugið að opnunartími getur breyst án fyrirvara
Vetraropnunartími
| Mánudagar | kl. 15:15-15:45 og 20:30-21:30 |
| Þriðjudagar | kl. 15:15-15:45 og 20:30-21:30 |
| Miðvikudagar | kl. 15:15-15:45 og 20:30-21:30 |
| Fimmtudagar | kl. 15:15-15:45 og 20:30-21:30 |
| Föstudagar | kl. 15:15-15:45 og 20:30-21:30 |
| Laugardagar | kl. 12:15-13:45 og 17:00-19:00 |
| Sunnudagar | kl. 12:15-13:45 og 17:00-19:00 |
Sumaropnunartími
1. júlí - 18. ágúst
| Mánudagar | kl. 11:00-21:00 |
| Þriðjudagar | kl. 11:00-21:00 |
| Miðvikudagar | kl. 11:00-21:00 |
| Fimmtudagar | kl. 11:00-21:00 |
| Föstudagar | kl. 11:00-21:00 |
| Laugardagar | kl. 11:00-21:00 |
| Sunnudagar | kl. 11:00-21:00 |
Sýndarvatnsleikfimi
Hér má nálgast dagskrá sýndarvatnsleikfimi í Sundhöllinni.
Lokun innilaugar
Innilaug er lokuð á eftirfarandi tímum vegna skólasunds
Mánudaga kl. 8:20-14:00
Þriðjudaga-föstudaga kl. 08:20-15:00