Vesturbæjarlaug
Mán.–fös. kl. 6:30–22:00
Lau.–sun. kl. 9:00-22:00
Hofsvallagata
107 Reykjavík
Vesturbæjarlaug
Vesturbæjarlaug er ein vinsælasta hverfalaug Reykjavíkur og hefur lengi verið félagslegur samkomustaður íbúa Vesturbæjar og annarra gesta. Laugin er þekkt fyrir hlýlegt andrúmsloft og sterka hverfisstemningu. Þar er útilaug, barnalaug, heitir pottar, kaldur pottur, gufubað og nýlega bættust við tvær sánur og ein stór innrauð sána.
Aðstaða í og við Vesturbæjarlaug
- 25 metra laug
- Aðgengi í sánur fyrir fatlaða
- Barnalaug
- Barnarennibraut
- Eimbað
- Fritt WiFi
- Heitir pottar
- Hlaupaleiðir
- Innrauð sána
- Kaldur pottur
- Nuddpottur
- Sala á sundfatnaði
- Sána
- Sérklefi
- Ungbarnaaðstaða
- Útiklefar
- Vaðlaug
- Veitingasala
Aðgengi og sérklefar
Við viljum að öllum líði vel í sundlaugum Reykjavíkur. Þess vegna er lögð áhersla á gott aðgengi, þægilega aðstöðu og fjölbreytta möguleika fyrir ólíkar þarfir. Hér er yfirlit um aðgengi og sérklefa í öllum sundlaugum Reykjavíkur.
Ítarlegar upplýsingar um Vesturbæjarlaug
Vesturbæjarlaug var tekin í notkun árið 1961. Stærð byggingarinnar er 850 fermetrar. Á svæðinu er sundlaug, barnalaug, fimm heitir pottar, eimbað, tvær sánur og innrauð sána. Árið 2014 var bætt við tvöföldum potti. Árið 2025 var bætt við tveimur sánum og innrauðri sánu.
Aðrar upplýsingar
Lokun á eimbaði
Eimbaðið er alltaf lokað á föstudögum milli kl 13-15 vegna djúpþrifa.
Opnunartími í sánur
Sánur og innrauð sána opna klukkan 10:00 á laugardögum og sunnudögum.
Skólasund og æfingar
Frá lok ágúst fram í júní má gera ráð fyrir því að hluti af laugum séu uppteknar undir skólasund og æfingar. Nánari upplýsingar er að fá í afgreiðslu í sundlauginni.