Menningarnótt 22. ágúst
Menningarnótt, stærsta afmælis- og borgarhátíð Reykjavíkur verður haldin laugardaginn 22. ágúst 2026.
Segja má að hátíðin sé hápunktur sumarsins og skemmtilegir viðburðir lita mannlífið í miðborginni frá morgni til kvölds.
Kvöldgöngur í sumar
Kvöldgöngur eru viðburðaröð sem Borgarbókasafn Reykjavíkur, Borgarsögusafn Reykjavíkur og Listasafn Reykjavíkur standa fyrir.
Göngurnar eru ókeypis og fara fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:00–21:30 yfir sumarmánuðina nema annað sé tekið fram.
Viltu koma þínum viðburðum á framfæri?
Öll geta skráð viðburði í viðburðardagatal borgarinnar.
Viðburðirnir birtast svo hér á borginokkar.is og eru einnig opnir fyrir aðra til að sækja og eru visir.is og GJUGG appið til dæmis að sækja þangað viðburði.
Út um allt
Út um allt - útivist á höfuðborgarsvæðinu er upplýsingavefur um útivistarsvæði, göngu- og hjólaleiðir á svæðinu.
Vefnum er ætlað að gefa yfirsýn yfir þá fjölbreyttu möguleika sem höfuðborgarsvæðið býður upp á í tengslum við útivist og spannar öll sveitarfélögin á svæðinu.
Reykjavíkurkortið í símann
Settu saman þitt kort og veldu það sem hentar þér. Reykjavíkurkortið er þinn aðgangur að því besta sem borgin hefur upp á að bjóða.
Þú velur hvað fer á kortið og getur haft það allt í símanum: sundkort, Menningarkort, Ylströndin í Nauthólsvík, Fjölskyldu- og húsadýragarðurinn eða líkamsrækt í Klébergslaug. Þitt er valið!