16318 Akstur almenningsvagna á höfuðborgarsvæðinu, markaðskönnun

Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins óskar eftir upplýsingum í: 

Akstur almenningsvagna á höfuðborgarsvæðinu, markaðskönnun nr. 16318. 

Markaðskönnun þessi er undanfari útboðs Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. (ASHB) á akstri almenningsvagna og er ætlað að kanna vöru- og þjónustuframboð mögulegra rekstraraðila.

Fyrirhugað er að akstur samkvæmt nýjum samningi hefjist á seinni hluta árs 2028. Verkefnið snýst um að bjóða út þann hluta aksturs almenningsvagna á höfuðborgarsvæðinu sem Strætó bs. sinnir í dag, með breytingum vegna tilkomu Fossvogsbrúar. Gert er ráð fyrir að sá hluti sem boðinn verður út telji minnst 45 vagna og mest 65 skv. vagnaferlum. 

Markaðskönnunargögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is frá kl. 09:00 þann 12. júní 2026.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Gögnum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 16:00,  þann 26. júní 2026.