16318 Akstur almenningsvagna á höfuðborgarsvæðinu, markaðskönnun
Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins óskar eftir upplýsingum í:
Akstur almenningsvagna á höfuðborgarsvæðinu, markaðskönnun nr. 16318.
Markaðskönnun þessi er undanfari útboðs Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. (ASHB) á akstri almenningsvagna og er ætlað að kanna vöru- og þjónustuframboð mögulegra rekstraraðila.
Fyrirhugað er að akstur samkvæmt nýjum samningi hefjist á seinni hluta árs 2028. Verkefnið snýst um að bjóða út þann hluta aksturs almenningsvagna á höfuðborgarsvæðinu sem Strætó bs. sinnir í dag, með breytingum vegna tilkomu Fossvogsbrúar. Gert er ráð fyrir að sá hluti sem boðinn verður út telji minnst 45 vagna og mest 65 skv. vagnaferlum.
Markaðskönnunargögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 09:00 þann 12. júní 2026. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Gögnum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 16:00, þann 26. júní 2026.